í dag :)

Tala af sérhmm nú á ég bara eftir að vinna nokkra klukkutíma og svo fer ég austur í heila 5 daga BrosandiBrosandiBrosandi það verður bara æðislegt er sko að fara í sauðburð... sjá öll litlu lömbin.. þetta verður bara gaman. Ég er alveg farin að telja tímana þangað til á sko flug klukkan 7 í kvöld.. er búin að vinna klukkan 5 og svo þarf ég að fara heim ná í dótið mitt, skila bílnum mínum upp í skúr til hans Guðbjörns sem er by the way langbestastur .. hehe allavega núna hann ætlar nefnilega að gera við bílinn minn .. alltaf gott að treysta á hann Ullandi svo ætlar hann Sigurður Ásgeirsson frændi minn að skutla mér á flugvöllinn Glottandihann er svo frábær og ég verð að viðurkenna það að ég hitti hann alltof sjaldan Fýldur en það verður að reyna að bæta úr því svona áður en maður eldist mikið meira hehehe. Sumarið verður vonandi æðislegt hjá mér.. en ég er í sumarfríi í tvær vikur núna það er síðasta vikan í júní og fyrsta vikan í júlí.. verður mikið um að vera hún Linda systir mín er að útskrifast úr háskólanum þann 25.júní ég á afmæli þann 28. júní og svo er sko hann Eyþór frændi minn að fara að gifta sig 1.júlí.. hehehe alveg brjálað .. enda verður bara étið þessa daga.. hehehehehehe.. ég er búin að finna brúðkaupsgjöf handa Eyþóri og Ernu bara æðislegt.. vona að þau verði ánægð með hana.. ( Erna það er bannað að verða forvitin Þögull sem gröfin heheh ) Í gær fór ég í smá afmæliskaffi til hennar Lindu systir og það var bara æðislegt alltaf saman veislan á þessu heimili.. verst að maður getur ekki klónað sig á svona tímum til þess að vera á tveimur stöðum í einu.. valið tímana þegar að maður þarf að vera svona allsstaðar.. var nefnilega eiginlega búin að ákveða að fara í heimsókn til hennar þóru vinkonu en svo minnti mamma mig á að það væri kaffi hjá Lindu í gærkvöldi og ég komst ekki í heimsóknina.. en það verður sko bætt úr því þegar að ég kem í bæinn aftur.. og svo þarf ég líka að kíkja á hana Elsu vinkonu mína það er orðið alltof langt síðan að ég fór til hennar eða plata hana á kaffihús eða eitthvað þannig.. Saklaus alltaf gott að fara á Café Paris.. og svo þarf ég auðvitað að fara á milljón aðra staði í heimsókn þar sem að maður hittir fólkið alltof sjaldan.. það er ótrúlegt hvað ég verð löt við að fara svona þegar að maður er búinn að vinna. Er yfirleitt búin klukkan 17:00 og þá fer maður heim og slakar á í smátíma en svo þegar að ég er komin heim sest niður og allt það þá verð ég voða löt við að fara eitthvað .. en er ákveðin í því að sparka í rassinn á sjálfri mér og hætta að hanga heima öll kvöld en auðvitað vill maður stundum bara vera heima og slaka á yfir imbanum eða eitthvað álíka.. það er líka gott.  En svona er lífið .. flókið Svalur Jæja ég ætla að fara að hætta þessu núna og reyna að finna mér eitthvað að gera hérna í vinnunni.. frekar rólegur dagur í dag sem þýðir að hann verður lengi að líða.. Það eru 8 tímar þangað til að ég fer í flug og bara 9 tímar þangað til að ég kemst austur.. Grátaþað er allt of langur tími..  en það verður að hafa það.. þetta hlýtur að líða. En ég skrifa hérna inná aftur þegar að ég kem í höfuðborgina  sem verður á mánudagskvöld. Þá fer ég að kveðja mömmu og pabba þar sem að þau eru að fara til Kína á þriðjudagsmorgunn og það snemma úff þau verða í alveg heila 10 daga þarna.. þetta hlýtur að vera geggjað gaman þau eru að fara að hlaupa  hálft maraþon á kínamúrnum sjálfum sem er eina byggða mannvirkið sem sést frá tunglinu.. hehe bara svona smá fróðleikur fyrir ykkur sem ekki vissuð það. En ég vil óska bara þeim og öllum sem eru að fara í þessa ferð góðrar ferðar og gangi ykkur vel að hlaupa þarna. Svo er hún Linda systir mín að fara í útskriftarferð til Tælands þann 27.maí.. úff það eru bara allir að fara.. nema ég.. hehe jæja best að hætta þessu bulli núna áður en ég fæ algjöra munnræpu.. HlæjandiTala af sérSkömmustulegurÞögull sem gröfin

strumpakveðjur..  (Helga strympa)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

veistu þú þarft bara ekkert að bæta úr því þegar þú kemur í bæinn.. góða skemmtun á austurlandinu með lömbunum!!

Þóra (IP-tala skráð) 10.5.2006 kl. 16:07

2 identicon

Já það er alveg rétt við þurfum að fara að hittast enda orðið mjööög langt síðan við gerðum eitthvað. Þú verður bara í sambandi þegar þú hefur tíma.

Elsa (IP-tala skráð) 10.5.2006 kl. 19:50

3 identicon

Góða skemmtun í sveitinni og mundu ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera !!!!

Elsa (IP-tala skráð) 10.5.2006 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

strumpaálfur

Höfundur

Helga Björg Garðarsdóttir
Helga Björg Garðarsdóttir
hmm sko lýsingu á mér ætti ekki að þurfa en ég skal skrifa eitthvað smá til þess að gefa ykkur hugmynd um hver ég er. Ég er frekar róleg og brosmild manneskja en er mjög opin og alltaf til í að tala um alla hluti. Ég elska að taka myndir sem er eitt af mínum aðaláhugamálum nú í dag. veit ekki hvað ég á að segja hérna meira þannig að ég læt þetta bara nægja. Það er bara eitt orð yfir mig og það er ENGILL!

Færsluflokkar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ag_2006_206
  • Sólsetur
  • Arnarstapi
  • í Ljósaskiptum
  • sólsetur við fljótið

Fólk

www.lsk.is

vefur Lögmannsstofunnar í skeifunni 11a

www.slfi.is

heimasíðan þar sem ég er að vinna

www.austurland.is

Egilsstaðir og umhverfi

www.maggajons.blog.is

heimasíða Möggu frænku og barnanna ;) bara flott

www.eythoringi.blog.is

heimasíða frænda míns á Akureyri

www.dalir.is

heimasíða Dalabyggðar sem er eitt fallegasta svæði á landinu

Tónlist

www.eurovision.is

allt um Eurovision fyrir þá sem vilja vita ;)

  • Sylvía Nótt - Eurovision in Athens 2006 - Til hamingju Ísland****


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 507

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband