1.5.2006 | 20:44
kröfugangan
Jæja þá er kröfugangan afstaðin og ég var geggjuð dugleg að labba frá hlemmi niður á Ingólfstorg með fána í hönd og myndavélina í hinni.. enda tók ég slatta af myndum þarna sem ég var svona frekar ánægð með. Það var nú ágætlega mætt í þetta skiptið en hefði kannski mátt vera soldið meira. Ég labbaði með Elsu, Baldvin og móður hans Baldvins niður Laugaveginn en var svona soldið á hlaupum til þess að ná myndum af föður mínum og hans fólki þarna ásamt mínum vinnufélögum sem er frá Sjúkraliðafélaginu. Reyndar vantaði tvær af okkur en þær er fjarri vegna veikinda og í fríi en ég veit að þær hafa verið með okkur í huganum. ég mun á næstu dögum setja myndir hérna inn frá göngunni og kannski læt slæðast með mynd af henni litlu systur í peysufötunum hehe en dagurinn í dag var mjög góður, frábært veður í alla staði svona nema þegar að þetta var um það bil að enda þá kom smá haglél en hvaða íslendingur þolir það ekki í nokkrar mínútur.. hehe. Pabbi var einn af þeim sem hélt á fána í göngunni enda kallinn orðinn sko Formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar . Hann tók við af henni Sjöfn sem er alveg frábær kona og skemmtileg. Ég hitti bæði hana og Jakobínu á Ingólfstorgi, alltaf gaman að sjá þær. En svo þegar að ég var að enda þetta hjá mér og á leið heim fékk ég skilaboð frá henni frænku minni um það að mynd af mér hefði birst á www.mbl.is undir forsögninni "Formaður SGS: Hugmyndir um afnám verðtryggingar árás á launafólk" ekki beint góð mynd en jæja svona er þetta víst, ekki það að mér finnst nú að ég ætti að fá borgað fyrir þetta.. hehehe (milljón á mynd) eitthvað þannig
Jæja ég læt þetta duga hjá mér í bili þar sem ég er orðin andlaus og veit ekki alveg hvað ég á að skrifa hérna meira. Sjáumst síðar
kveðja til ykkar allra frá mér Helga Björg
Um bloggið
strumpaálfur
Færsluflokkar
Bloggvinir
Fólk
www.lsk.is
vefur Lögmannsstofunnar í skeifunni 11a
www.slfi.is
heimasíðan þar sem ég er að vinna
-
Sjúkraliðafélag Íslands
sjúkraliðafélagið
www.austurland.is
Egilsstaðir og umhverfi
-
Um Austurlandið
Egilsstaðir
www.maggajons.blog.is
heimasíða Möggu frænku og barnanna ;) bara flott
www.eythoringi.blog.is
heimasíða frænda míns á Akureyri
www.dalir.is
heimasíða Dalabyggðar sem er eitt fallegasta svæði á landinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.