11.3.2007 | 22:29
kvartið þið bara.. ;) hehe
jæja þá er best að blogga aðeins þar sem að það hefur verið kvartað um það að ég sé ekki nógu dugleg við þetta.. hehe ég veit ég veit.. bara mikið að gera eða eitthvað álíka..
það hefur nú ekki mikið verið að gerast fyrir utan þetta blessaða daglega líf.. en í dag eru 67 dagar í fæðingu.. ég er komin með grindargliðnun gaman gaman eða þannig. En örugglega alveg þess virði. Í dag höfum við bara verið að taka því rólega og slaka á svona fyrir utan það að þrífa húsið, garðinn og svo bílinn.. hehe enduðum á því að grilla okkur rosa góðan mat , alltaf gott að eiga mann sem er snilldarkokkur .. horfði á X-facto á föstudaginn þvílík spenna en úff þetta bjargaðist allt saman fyrir horn.. ef ég á að spá í það hverjir verða efstir þá eru það stelpurnar tvær frá Hveragerði, Jógvan þessi færeyski og svo Guðbjörg þessi 16 ára.. þetta eru snilldarhæfileikar hef undanfarna daga verið að skanna inn gamlar myndir sem ég á í myndaalbúmum og einnig myndir sem ég stal hjá henni ömmu minni og mömmu. Er sko að fara að búa til svona ættartré en vantar alveg myndir frá fjölskyldunni hans Binna en það er næst á dagskrá. Hef fengið að skoða fullt af myndum hjá henni Rósu okkar.. (frænka hans Binna) hún er svo FRÁBÆR og svo auðvitað Tobba.. sem er algjör snilld. Þetta er bara svona eitt af þeim verkefnum sem ég er að vinna í. Þannig að það er nóg að gera svona á daginn þegar að ég er að dunda mér hérna ein. Svo er farið að líða að því að hún Erna mín fari að gjóta hehe hún er sett á 20. mars og ég ætla að veðja að þau hjónin fái lítinn strák.. ;) en hvort sem það verður þá verður þetta krúttað barn hefur útlit frá báðum foreldrum hehe en föðurættin er auðvitað allt myndarlegt fólk
En hey ætla að koma af stað smá veðmáli hérna.. Hvort haldið þið að ég sé með stelpu eða strák?
endilega segið ykkar hugmyndir hérna inn og svo er bara að sjá hverjir hafa rétt fyrir sér
En jæja svo er að koma að stórafmæli í familiunni næstu daga.. hún amma mín verður sko áttræð og það verður haldið upp á það með pompi og pragt .. hlakka rosalega til að hitta hana aftur við skötuhjúin komum suður líklega nokkrum dögum áður til þess að hjálpa mömmu þeim með allt sem þarf að gera og eins til þess að taka allt til sem á að koma ömmu á óvart.. vona að hele familien geti komið til þess að fagna með henni en reyndar verða Eyþór og Erna öðrum hnöppum að hneppa.. hehe ala upp nýfætt barn.. Hey Erna ég skal veðja að ég hef rétt fyrir mér þetta verður lítill Marteinn hjá ykkur ;) hehehehe..
Jæja þetta er nóg handa ykkur kálhausunum í bili.. hehe djók
sé ykkur öll þótt síðar verði sum fyrr en önnur
kveðja úr sveitarblíðunni héðan að austan
Helga B
Um bloggið
strumpaálfur
Færsluflokkar
Bloggvinir
Fólk
www.lsk.is
vefur Lögmannsstofunnar í skeifunni 11a
www.slfi.is
heimasíðan þar sem ég er að vinna
-
Sjúkraliðafélag Íslands
sjúkraliðafélagið
www.austurland.is
Egilsstaðir og umhverfi
-
Um Austurlandið
Egilsstaðir
www.maggajons.blog.is
heimasíða Möggu frænku og barnanna ;) bara flott
www.eythoringi.blog.is
heimasíða frænda míns á Akureyri
www.dalir.is
heimasíða Dalabyggðar sem er eitt fallegasta svæði á landinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert með lítið strákakríli alveg viss um það:) Já heldurðu að þetta verði strákur hjá mér hmmm kannski það Marteinn er nú engin tilviljun haha nei segi svona, höfum ekki grænan grun en ég reyndar veðja á stelpu hjá mér:)
habbðu það sem best...og já hipp hipp húrra fyrir grindargliðnun algjör eðal tilfinning.............
Móðir, kona, sporðdreki:), 12.3.2007 kl. 18:26
gamla!! Maður er bara alveg hættur að heyra í þér!! mér finnst þetta ekkert sniðugt... en á maður ekki að halda að þetta sé kvkið :):) En mér finnst samt líka að þið ættuð að fara að kíkka norðurleiðina og kannski einu sinni þegar ég er ekki að vinna En flott blogg hjá þér sæda mínmín :*** Sjáááumst :* LOV!!
Jónínan :) (IP-tala skráð) 13.3.2007 kl. 23:12
Já sko ég tala alltaf um stelpuna þína.......en það sem við vitum með vissu er að þetta verður yndislegt barn sem þið eignist, hvort sem það er stráksi eða stelpa:) og Maggan verður sko snögg að kíkja á krílið þegar það kemur:) og by the way,,,,, grindargliðnun.......mmmmmmmmmmm
Margrét, Fanney og Patrekur, 15.3.2007 kl. 20:18
Mér finnst að þú eigir að commenta á mín blogg veistu hvaaaað ég er að fara gera næsta fimmtudag??? úúhúhú... nú er komin tími á að þú komir og sjáir mig á sviði held ég!!!!! :) tíhíhíhíhíhíhí!!! en commentaðu á www.blog.central.is/nattfatagellur
Jónína aftur :P (IP-tala skráð) 16.3.2007 kl. 15:08
það er náttúrlega 50/50 líkur á hvoru kyni svo.. ugla sat á kvisti..hehe ég segi stelpa..en fæðist samt hálfum mánuði fyrir tímann.. held þessum einstakling liggi ágætlega á að komast í heiminn :-) svona til að hafa auga með mömmu sinni...veitir sko ekki af..heheheh :) sjáumst vonandi þegar þú kemur í bæinn
Þóra St. (IP-tala skráð) 18.3.2007 kl. 10:04
Ég held að krílið sé stelpa! Held að pabba þíns ætt geti bara átt stelpur ;)
Nei, annars held ég alltaf að þeir sem eru óléttir gangi með stelpu út af því að mig myndi frekar langa í stelpu!
Hvort kynið sem krílið er verður það án efa yndislegt barn :*
Kv. Auður
Auður Björg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 20.3.2007 kl. 13:47
Hæ. Ég myndi fyrst vilja sjá mynd af þér áður en ég giska á strák eða stelpu. Skv. gömlum ráðum fer þetta nú allt eftir hvernig kúlan liggur.
kv, Edda
Edda (IP-tala skráð) 24.3.2007 kl. 19:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.